Persónuverndarstefna Delta tannlækna
Delta tannlæknar vinna með viðkvæm persónugreinanleg gögn um sjúklinga og starfsmenn og vistar í upplýsingakerfum sínum. Delta tannlæknar leggja ríka áherslu á að tryggja, með margvíslegum hætti, trúnað, áreiðanleika, örugga og ábyrga meðferð upplýsinga.
Hvaða gögn
Um er að ræða viðkvæm persónugreinanleg gögn um sjúklinga og starfsfólk:
- Sjúkraskár sjúklinga
- Trúnaðargögn um starfsfólk
Heimildir
Delta tannlæknar vista og vinna eingöngu með þau gögn sem nauðsynleg eru og heimilt er að vinna með samkvæmt lögum, samningum við aðila eða upplýstu samþykkti einstaklinga og annarra þeirra sem að verkefnum koma.
Hvaða notkun
Gögn og upplýsingar sem Delta tannlæknar geyma í upplýsingakerfum sínum, eru einungis notuð til að fyrirtækið geti sinnt hlutverki sínu á sem bestan máta og þjónustað og stutt viðskiptavini sína eins og frekast er kostur. Delta tannlæknar munu aldrei dreifa persónuupplýsingum til þriðja aðila án heimildar.
Varnir
Öll gögn og vinnslur eru varin þannig að einungis þeir sem heimildir hafa til að vinna með gögnin, sjá þau og/eða breyta, geta framkvæmt slíkar aðgerðir, aðrir geta ekki skoðað gögnin. Allar uppflettingar í sjúkraskrár eru skráðar og rekjanlegar.
Afritun
Öll gögn hjá Delta tannlæknum eru afrituð til að tryggja að þau séu ætíð til staðar.
Breytingar og leiðréttingar á persónuupplýsingum
Það er mikilvægt að þær persónuupplýsingar sem Delta tannlæknar vinna með séu bæði réttar og viðeigandi. Því er mikilvægt að félaginu sé tilkynnt um allar breytingar sem kunna að verða á persónuupplýsingum þínum. Þú átt rétt á því að fá óáreiðanlegar persónuupplýsingar um þig leiðréttar. Að teknu tilliti til tilgangs vinnslu persónuupplýsinga átt þú jafnframt rétt á að láta fullgera ófullkomnar persónuupplýsingar um þig, þ.m.t. með því að leggja fram frekari upplýsingar.
Réttur einstaklinga til upplýsinga um vinnslu og aðgangs að eigin persónuupplýsingum
Delta tannlæknar veita skjólstæðingum sínum sem eftir því óska, aðgang að upplýsingum um þau persónugögn sem Delta tannlæknar vista og/eða vinna með um einstaklinginn.
Persónuverndarfulltrúi
Hafir þú fyrirspurn, ábendingu eða kvörtun er varðar vinnslu persónuupplýsinga getur þú sent tölvupóst til persónuverndarfulltrúa Læknastöðvarinnar á netfangið delta@delta.is.